Öll verkefni
í þróun
delivery & coordinationB2B

GoLivePlaybook

Í verkefnavinnu nota fyrirtæki oft mörg tól sem tala illa saman. Þetta á að gera betur.

Skoða síðuna

Vandamálið

Verkefnavinna fer oft fram í mörgum ótengdum tólum. Upplýsingar dreifast, eignarhald verður óljóst og framkvæmdin erfiðari en hún þarf að vera. Þetta safnast upp hljóðlega.

Innsýnin

Ekkert fyrirtæki framkvæmir eins. Það sem flest þurfa er ekki enn eitt almennt tólið, heldur umhverfi sem aðlagast að þeirra veruleika.

Lausnin

Verkefna- og framkvæmdalausn sem hjálpar fyrirtækjum að byggja sitt eigið skipulagða umhverfi, sniðið að þeirra rekstri, þeirra flæði og þeirra þörfum.

Meira samhengi

Í verkefnavinnu lenda fyrirtæki oft í því að nota mörg tól sem tala illa saman. Upplýsingar dreifast, utanumhald verður óþarflega þungt og framkvæmdin flóknari en hún þyrfti að vera. GoLivePlaybook byggir á margra ára reynslu minni úr verkefna- og vörutengdu umhverfi og þeirri trú að tæknin geti hjálpað fyrirtækjum að búa til umhverfi sem passar raunverulega við þau sjálf. Ekki eitt sniðmát sem á að henta öllum, heldur skipulag sem mótast af rekstrinum, flæðinu og þörfunum hvers og eins.

Ertu með einhverjar hugmyndir um þetta?

Mig langar alltaf að heyra frá fólki sem þekkir þetta, hvort sem þú hefur sjálf/ur upplifað það, átt hugmyndir eða vilt bara spjalla um það.

Hafa samband