Hands-on námskeið fyrir fyrirtæki
Ég býð fyrirtækjum upp á hands-on námskeið í því hvernig þau geta nýtt sér þessa tækni í alvörunni. Ekki sem einhverja loðna kynningu á því hvað gæti mögulega verið hægt, heldur þannig að ég komi inn og við notum tæknina saman til að leysa raunverulegt vandamál.
Hugmyndin er einföld: við tökum fyrir eitthvað sem fyrirtækið er í dag fast með - kerfi, ferli eða lausn sem er óþarflega leiðinleg, óskilvirk, ljót eða dýr - og í stað þess að tala um hvernig mætti kannski bæta það einhvern tímann, byggjum við saman nýja og miklu nothæfari útgáfu.
Mér finnst það miklu meira virði en að tala bara um möguleikana. Þegar fólk sér með eigin augum að það er hægt að skipta út gömlu lausninni fyrir eitthvað sem passar betur við þeirra vinnuflæði, þeirra fólk og þeirra þarfir, þá fyrst verður ljóst hvað þessi tækni getur gert. Og í mörgum tilfellum getur það líka þýtt minni kostnað, minni pirring og miklu betri nýtingu á tíma.
“Áður var ég að vasast sjálfur í Wix-heimasíðunni minni, sem var hreinskilnislega alveg ömurlega ljót og virkaði eiginlega bara í síma. Svo kom Stebbi, riggaði upp nýrri síðu á no time með geggjuðu bókunarkerfi og innbyggðri sjálfsafgreiðslureiknivél. Hann kenndi mér líka að nota gervigreindina þannig að nú sé ég sjálfur um þetta, nánast vesenislaust. Það gerir allt bæði einfaldara og miklu flottara. Prófið endilega að bóka Fimmuna á www.fimman.is. Hann er með helvíti gott trúbbakonsept.